Sunna: Ótrúlega gaman að koma inn á

Sunna Jónsdóttir.
Sunna Jónsdóttir. mbl.is

Sunna Jónsdóttir fékk tækifæri til að spreyta sig á EM í handknattleik í fyrsta skipti gegn Rússlandi í dag. Sunna skoraði tvö mörk í síðari hálfleik en Ísland tapaði 21:30 og er úr leik í keppninni.

„Það var ótrúlega gaman að koma inn á en það er leiðinlegt að leikurinn hafi farið svona,“ sagði Sunna við mbl.is og sagðist ekki hafa fundið fyrir neinu stressi.

„Við vorum einmitt að tala um það að Evrópumótið er bara eins og allir aðrir landsleikir. Við vorum tilbúnar í þetta verkefni eins og öll önnur mót sem við höfum tekið þátt í. Vissulega er gaman að taka þátt í svona stórmóti og það er mikið í kringum þetta sem er ekki á öðrum mótum. Þetta er góð reynsla,“ sagði Sunna og bætti því við að það hafi verið erfitt að eiga við leikmenn Rússlands í dag og liðið væri ekki heimsmeistari að ástæðulausu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert