Adolf Ingi fær Hammerseng til að roðna (myndskeið)

Gro Hammerseng í leik gegn Svíum sem er eini tapleikur …
Gro Hammerseng í leik gegn Svíum sem er eini tapleikur Noregs á EM hingað til. Reuters

Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafréttamaður hjá RÚV, er þessa dagana á Evrópumeistaramóti kvenna í handknattleik og býr þar til skemmtileg myndskeið fyrir youtube-vef keppninnar.

Hægt er að komast á vefinn með því að smella hér.

Á meðal efnisins sem Adolf Ingi hefur búið til er viðtal við norsku handboltastjörnuna Gro Hammerseng. Þar er Hammerseng spurð út í myndir af svakalegum magavöðvum sínum, og ekki er laust við að hún verði ansi vandræðaleg, sérstaklega þegar Adolf Ingi spyr hvort hún vilji ekki sýna þá. Hammerseng segir þó ekki loku fyrir það skotið að hún sýni magavöðvana fari svo að Noregur vinni mótið, en norska liðið er komið í undanúrslit og mætir Danmörku á laugardaginn. Myndskeiðið má sjá hér að neðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert