Mikkel Hansen, stærsta stjarnan í danska handboltanum um árabil, hefur oft verið í betri leikæfingu fyrir stórmót en hann hefur ekki verið í stóru hlutverki með frönsku meisturunum París SG á þessu keppnistímabili.
Hansen, sem er 34 ára gamall, hafði þegar í haust samið við Aalborg í Danmörku um að koma til félagsins sumarið 2022 og fyrir vikið hefur Raúl Gonzales þjálfari PSG verið með Danann öfluga í aukahlutverki í vetur en franski landsliðsmaðurinn Elohim Prandi hefur spilað hans stöðu megnið af leiktímanum.
Bent Nyegaard, sérfræðingur TV2 í Danmörku og þjálfari Fram og ÍR á árum áður, furðar sig á þessu í umfjöllun um stöðu Hansens á TV2.
„Ég hef verið hissa á hversu mikið Gonzales notar Prandi í staðinn fyrir Hansen. Ég er ekki með skýringu á reiðum höndum en staðreyndin er sú að Mikkel Hansen hefur sjaldan verið í eins góðu formi og núna. PSG verður örugglega franskur meistari án þess að vera með Hansen í aðalhlutverki, en ég fékk t.d. ómögulega skilið hvers vegna hann var í svo litlu hlutverki þegar PSG tapaði fyrir Aalborg í Meistaradeildinni. Og svona hefur þetta verið í mörgum leikum síðan. Hann er ekki nýttur sem skyldi, jafnvel þó hann sé á förum frá félaginu. PSG með Mikkel Hansen er mun betra en PSG án Mikkel Hansen,“ segir Nyegaard.
Hansen hefur aðallega tekið vítaköst fyrir PSG í vetur og aðeins skorað 15 mörk úr opnum leik í 1. deildinni á tímabilinu en 47 úr vítaköstum.
Danski landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen segir að Hansen sé í góðu formi fyrir EM.
„Hann er fínn. Mikkel æfir vel og það hefur sést í okkar leikjum. Hann skoraði fimm mörk í fyrri hálfleik gegn Noregi og svo hvíldi ég hann. Mér finnst hann vera í góðri stöðu. Hann virkar frískur og klár í slaginn og talar mikið, sem er góðs viti,“ sagði Jacobsen við TV2.
Sjálfur er Hansen rólegur yfir stöðu mála. „Þetta kemur bara í ljós og hefur alls ekki verið svo slæmt. Í stærstu leikjunum hef ég spilað mikið og það hefur bara gengið vel,“ sagði Hansen sem gerði þriggja ára samning við Aalborg og verður þar samherji Arons Pálmarssonar.