Íslenska dómaraparið Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson hefur lokið þátttöku á EM karla í handknattleik í Ungverjalandi og Slóvakíu.
Anton Gylfi Pálsson smitaðist af kórónuveirunni og er nú í einangrun á hóteli. Jónas hélt heim til Íslands af þeim sökum og slapp við smit.
Anton greinir frá þessu á samfélagsmiðlum í dag og lætur vel af sér en segir þetta skiljanlega vera vonbrigði fyrir þá félagana.