Ómar og Janus ekki með gegn Króatíu

Ómar Ingi Magnússon er veikur.
Ómar Ingi Magnússon er veikur. AFP/Ina Fassbender

Ómar Ingi Magnússon leikur ekki með íslenska karlalandsliðinu í handknattleik þegar liðið mætir Króatíu í milliriðli 1 á Evrópumótinu í Lanxess-höllinni í Köln í dag.

Ómar Ingi er veikur samkvæmt heimildum mbl.is og þá verður Janus Daði Smárason ekki heldur með íslenska liðinu í leiknum en hann og Ómar Ingi eru herbergisfélagar í íslenska landsliðinu.

Þeir Einar Þorsteinn Ólafsson og Kristján Örn Kristjánsson koma inn í leikmannahóp íslenska liðsins í stað Ómars Inga og Janusar Daða.

Leikur Íslands og Króatíu hefst klukkan 14.30 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

Leikmannhópur Íslands:

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val (265/21)
Viktor Gísli Hallgrímsson, Nantes (56/1)

Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (92/98)
Aron Pálmarsson, FH (175/661)
Bjarki Már Elísson, Veszprém (112/385)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (6/0)
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (44/93)
Elvar Örn Jónsson, Melsungen (73/170)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (58/126)
Haukur Þrastarson, Kielce (29/36)
Kristján Örn Kristjánsson, Aix (32/60)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten (36/98)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (70/199)
Stiven Tobar Valencia, Benfica (13/11)
Viggó Kristjánsson, Leipzig (51/142)
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (85/36)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert