Elohim Prandi skoraði eitt besta mark Evrópumóts karla í handbolta og á sama tíma það mikilvægasta þegar hann skoraði 27. mark Frakklands gegn Svíþjóð í undanúrslitum í kvöld.
Prandi gerði sér lítið fyrir og jafnaði í 27:27 með skoti beint úr aukakasti eftir að leiktíminn rann út. Negldi hann boltanum í slána og inn.
Markið gaf Frökkum mikla orku og unnu þeir að lokum 34:30-sigur.
Markið ótrúlega má sjá hér fyrir neðan.
ELOHIM PRANDI SENDS US INTO EXTRA TIME 🤯🤯🤯#ehfeuro2024 #heretoplay #FRASWE pic.twitter.com/NJRaVdZyLc
— EHF EURO (@EHFEURO) January 26, 2024