Melvyn Richardson verður ekki með Frökkum gegn Dönum í úrslitaleik Evrópumótsins í handknattleik í dag.
Ferðaðist Richardson til Barcelona í gær þar sem kona hans bíður þess að fæða fyrsta barn þeirra.
Richardson, sem er leikmaður Barcelona, á 98 landsleiki að baki og hefur skorað í þeim 186 mörk. Hann er sonur goðsagnarinnar Jackson Richardson.
Úrslitaleikur EM hefst klukkan 16.45 í Lanxess Arena í Köln. Mbl.is verður með beina textalýsingu frá leiknum.