Kominn aftur í leikmannahóp United

Jadon Sancho.
Jadon Sancho. AFP/Leonardo Munoz.

Jadon Sancho var eini útileikmaður Manchester United sem spilaði allan leik liðsins gegn Rangers í æfingaleik liðanna í dag.

Sancho var á láni hjá Dortmund undir lok síðasta tímabils en hann og Erik ten Hag, knattspyrnustjóri liðsins, voru ekki miklir vinir undir lokinn en hafa rætt málinn.

Hann stóð sig mjög vel með Dortmund á síðasta tímabili og það er mögulega stórt hlutverk fyrir hann hjá United á næsta tímabili.

Leikurinn endaði 2:0 fyrir United en Amad Diallo og Joe Hugill skoruðu mörkin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert