Cesc Fabregas skoraði á 71. mínútu fyrir enska liðið Arsenal í 2:0-sigri liðsins Spörtu Prag í Tékklandi í 3. umferð forkeppninnar í Meistaradeild Evrópu. Aleksandr Hleb skoraði síðara mark Arsenal rétt fyrir leikslok. Staðan var 0:0 í hálfleik en þetta er fyrri viðureign liðanna.
Arsenal tefldi fram sama byrjunarliði og gegn Fulham í úrvalsdeildinni síðasta sunnudag.