Framherjinn Peter Crouch hefur náð samkomulagi við Portsmouth um kaup og kjör hjá félaginu og mun hann skrifa undir samning við bikarmeistaranna síðar í vikunni eftir ítarlega læknisskoðun. Crouch hefur verið í herbúðum Liverpool frá árinu 2005.
Portsmouth greiðir um 11 milljónir punda, 1,7 milljarða króna, fyrir framherjann hávaxna, og er honum ætlað að styrkja sóknarleik Portsmouth sem leikur í UEFA-bikarnum á komandi leiktíð.
Crouch hefur áður leikið með Portsmouth en hann lék með liðinu tímabilið 2001-02, alls 37 leiki og skoraði í þeim 18 mörk.