Yfirlýsing frá Capello

Fabio Capello.
Fabio Capello. Reuters

Fabio Capello, fyrrum landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu. Þar segir hann:

„Ég vil þakka öllum leikmönnum, starfsliði og enska knattspyrnusambandinu fyrir fagmennskuna sem allir hafa sýnt á þeim árum sem ég hef stjórnað enska landsliðinu. Ég vil senda sérstakar þakkir til allra stuðningsmannanna, sem hafa alltaf staðið á bak við liðið og mig í mínu starfi.

Ég óska þeim öllum gæfu og gengis við að ná sínum markmiðum í íþróttinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert