Enski knattspyrnumaðurinn Fabrice Muamba sem fékk hjartaáfall í leik með Bolton gegn Tottenham á laugardagskvöldið hefur sýnt hægar framfarir að því er fram kemur í yfirlýsingu frá London Chest-sjúkrahúsinu í London. Hjarta leikmannsins slær nú án hjálpar og hann hefur hreyft bæði hendur og fætur.
Í yfirlýsingunni kemur fram að Muamba sé enn mikið veikur og ekki sé ljóst hvernig honum muni reiða af en starfsfólk London Chest-sjúkrahússins fylgist náið með líðan hans.