Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í dag voru teknar fyrir tillögur sérsambanda ÍSÍ um val á þátttakendum, keppendum og aðstoðarfólki á Ólympíuleikana í London sem fram fara 27. júlí til 12. ágúst. Keppendur eru 27 talsins í sex íþróttagreinum og voru formlega kynntir á blaðamannafundi í dag. Tillögur allra sérsambanda voru samþykktar.
Ólympíulið Íslands 2012 er þannig skipað:
Frá ÍSÍ:
Andri Stefánsson aðalfararstjóri
Þórarinn Alvar Þórarinsson aðstoðarfararstjóri
Fagteymi:
Örnólfur Valdimarsson læknir
Brynjólfur Jónsson læknir
Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari
Róbert Magnússon sjúkraþjálfari
Elís Þór Rafnsson sjúkraþjálfari - handknattleikur
Pétur Örn Gunnarsson sjúkraþjálfari - handknattleikur
Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari - sund
Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur
Badminton:
Ragna Björg Ingólfsdóttir keppandi, Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur, einliðaleikur
Margrét Gunnarsdóttir flokksstjóri
Jónas Weicheng Huang þjálfari
Frjálsíþróttir:
Ásdís Hjálmsdóttir keppandi, Ármanni, spjótkast
Kári Steinn Karlsson keppandi, Breiðabliki, maraþonhlaup
Óðinn Björn Þorsteinsson keppandi, Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, kúluvarp
Þórey Edda Elísdóttir flokksstjóri
Gunnar Páll Jóakimsson þjálfari, maraþonhlaup
Helgi Þór Helgason þjálfari, kúluvarp
Stefán Jóhannsson þjálfari, spjótkast
Handknattleikur:
Aron Rafn Eðvarðsson *keppandi, Haukum
Björgvin Páll Gústavsson *keppandi, Magdeburg
Hreiðar Levý Guðmundsson *keppandi, Nötteröy
Alexander Petersson *keppandi, Füchse Berlin
Arnór Atlason *keppandi, AG Köbenhavn
Aron Pálmarsson *keppandi, Kiel
Ásgeir Örn Hallgrímsson *keppandi, Hannover-Burgdorf
Bjarki Már Elísson *keppandi, HK
Guðjón Valur Sigurðsson *keppandi, AG Köbenhavn
Ingimundur Ingimundarson *keppandi, Fram
Kári Kristján Kristjánsson *keppandi, HSG Wetzlar
Ólafur Gústafsson *keppandi, FH
Ólafur Bjarki Ragnarsson *keppandi, HK
Ólafur I. Stefánsson *keppandi, AG Köbenhavn
Róbert Gunnarsson *keppandi, Rhein-Neckar Löwen
Snorri Steinn Guðjónsson *keppandi, AG Köbenhavn
Sverre Andreas Jakobsson *keppandi, Grosswallstadt
Vignir Svavarsson *keppandi, Hannover-Burgdorf
Þórir Ólafsson *keppandi, KS Vive Targi Kielce
Einar Örn Þorvarðarson flokksstjóri
Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfari
Óskar Bjarni Óskarsson aðstoðarþjálfari
Róbert Geir Gíslason liðsstjóri
Gunnar Magnússon tæknimaður
Júdó:
Þormóður Árni Jónsson keppandi, Júdófélagi Reykjavíkur, +100 kg
Jón Hlíðar Guðjónsson flokksstjóri
Bjarni Friðriksson þjálfari
Skotfimi:
Ásgeir Sigurgeirsson keppandi, Skotfélagi Reykjavíkur, loftskammbyssa og frjáls skammbyssa
Halldór Axelsson flokksstjóri
Ragnar Skanaker þjálfari
Sund:
Anton Sveinn Mckee keppandi, Sundfélaginu Ægi, 1.500m skriðsund og 400m fjórsund
Árni Már Árnason keppandi, ÍRB, 50m skriðsund
Eygló Ósk Gústafsdóttir keppandi, Sundfélaginu Ægi, 100m baksund, 200m baksund, 200m fjórsund og 4x100m fjórsund (boðsundssveit)
Eva Hannesdóttir keppandi, Sunddeild KR, 4x100m fjórsund (boðsundssveit)
Hrafnhildur Lúthersdóttir keppandi, Sundfélagi Hafnarfjarðar, 100m bringusund, 200m bringusund og 4x100m fjórsund (boðsundssveit)
Jakob Jóhann Sveinsson keppandi, Sundfélaginu Ægi, 100m bringusund og 200m bringusund
Sarah Blake Bateman keppandi, Sundfélaginu Ægi, 50m skriðsund, 100m flugsund og 4x100m fjórsund (boðsundssveit)
Ingi Þór Ágústsson flokksstjóri
Jacky Pellerin þjálfari
*Alls eru 19 leikmenn í hópi íslenska liðsins. Reglur varðandi leikmannafjölda í handknattleik hafa breyst frá fyrri leikum á þann hátt að nú má skipta út leikmönnum meðan á keppni stendur, vegna meiðsla og annarra ófyrirsjáanlegra atvika. Þannig er hægt að vinna með stærri hóp en áður en samt munu eingöngu 14 leikmenn auk eins varamanns vera í London hverju sinni.