Ragna Ingólfsdóttir, úr TBR, mun hefja keppni á Ólympíuleikunum í London í kvöld og mætir Akvile Stapusaityte frá Litháen. Jie Yao frá Hollandi er einnig í riðlinum en Ragna keppir á móti henni annað kvöld.
Sigurvegarinn í riðlinum kemst áfram í 16-manna úrslit. Ragna er sigurstranglegri aðilinn gegn þeirri litháísku í kvöld og hefur unnið hana í öll þau fjögur skipti sem þær hafa mæst.
„Ég ætla að reyna að einbeita mér að fyrsta leiknum á móti Stapusaityte. Það er frekar leiðinlegt að spila á móti henni. Hún öskrar á eftir hverjum einasta bolta og það er ekki mjög gaman að spila á móti þannig spilurum. Hún var til dæmis alveg tryllt á Iceland International síðasta vetur. Ég verð einhvern veginn að reyna að gíra mig inn á það og reyna að vera með svipað viðhorf á móti. Þó ég hafi unnið hana fjórum sinnum þá er þetta engu að síður 50/50 leikur því Ólympíuleikarnir eru einhvern veginn allt öðruvísi en öll önnur mót.“
Sjá nánar samtal við Rögnu um viðureignina í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.