Daníel og Heiðrún úr leik hjá HK

Bæði karla- og kvennalið HK í handknattleik hafa misst lykilmenn vegna meiðsla út þetta tímabil en nú er ljóst að Daníel Berg Grétarsson spilar ekki meira með karlaliðinu og Heiðrún Björk Helgadóttir ekki meira með kvennaliðinu á þessu keppnistímabili. Þetta kemur fram á vef HK.

Daníel meiddist á hné í leik gegn Fram í lok september og staðfest hefur verið að hann sé bæði með slitið krossband og slitið liðband, með meiru.

Heiðrún var að ná sér af meiðslum sem hún varð fyrir í fyrravetur og var byrjuð að spila í haust. Hún fékk þá slæmt högg á hné og nú er ljóst að hún er líka með slitið krossband, og hefur þegar gengist undir aðgerð vegna þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert