David Moyes er líklegur kandídat í stöðu knattspyrnustjóra Tottenham Hotspur, sem mun ráða nýjan mann í staðinn fyrir Tim Sherwood í sumar, samkvæmt frétt London Evening Standard í dag.
Blaðið segir að Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, sé einlægur aðdáandi Moyes og hafi haft hann sterklega í sigtinu áður en André Villas-Boas var ráðinn til félagsins árið 2012. Hinsvegar séu aðrir forráðamenn Tottenham efis um Moyes vegna þess hve illa honum gekk hjá Manchester United en þar var Moyes sagt upp í vikunni eftir aðeins tíu mánuði í starfi.