Danny Welbeck hefur verið tjáð að honum sé frjálst að yfirgefa Manchester United áður en lokað verði fyrir félagaskipti um mánaðamótin.
Þetta fullyrðir Daily Telegraph í dag. Þar segir að þessi tíðindi veki áhuga bæði Arsenal og Tottenham sem hafi áður reynt að fá Welbeck í sínar raðir.
Welbeck á tvö ár eftir af samningi sínum við United. Hann er 23 ára og sagður falur fyrir um 15 milljónir punda.
Samkvæmt frétt Telegraph ætlar Louis van Gaal að treysta á Wayne Rooney, Robin van Persie og Javier Hernández sem sóknarmenn United í vetur og því sé Welbeck frjálst að fara.