Peter Crouch tryggði Stoke sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar hann skoraði eina mark leiksins á 15. mínútu á Britannia Stadium, heimavelli Stoke-liðsins.
Með sigrinum færðist Stoke upp í 11. sæti deildarinnar með 8 stig að loknum sex leikjum. Newcastle er hinsvegar í næst neðsta sæti deildarinnar með 3 stig. Alan Pardew, knattspyrnustjóri liðsins, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en stuðningsmenn Newcastle sendu honum tóninn meðan leikurinn stóð yfir í kvöld. Pardew er talinn mjög valtur í sessi.