Fulham hefur gengið frá ráðningu á Kit Symons í stöðu knattspyrnustjóra en hann hefur gegnt starfinu frá því í september þegar Þjóðverjinn Felix Magath var látinn fara.
Fulham hefur unnið fimm leiki af níu undir stjórn Symons sem lengi lék í vörn liðsins á árum áður. Liðið er nú komið af fallsvæðinu í B-deildinni.