Manchester City, ensku meistararnir í knattspyrnu, hafa lánað serbneska miðvörðinn Matija Nastasic til Schalke í Þýskalandi út þetta keppnistímabil.
Nastasic, sem er 21 árs, kom til City frá Fiorentina árið 2012 og hefur spilað 34 leiki með liðinu í úrvalsdeildinni, flesta á fyrsta tímabilinu. Hann missti mikið úr síðasta vetur vegna meiðsla en spilaði þá 13 deildaleiki. Í vetur hefur hann ekkert komið við sögu hjá liðinu í deildinni.