Velska knattspyrnufélagið Swansea City, sem Gylfi Þór Sigurðsson leikur með, gekk nú síðdegis frá kaupum á bakverðinum Kyle Naughton frá Tottenham Hotspur og samdi við hann til hálfs fjórða árs.
Naughton er 26 ára gamall og hefur verið í röðum Tottenham frá 2009 en verið lánaður á þeim tíma til Middlesbrough, Leicester og Norwich. Hann hefur spilað 42 leiki með Tottenham í úrvalsdeildinni og lék 9 leiki með enska 21-árs landsliðinu á sínum tíma.