Belgíski landsliðsmaðurinn Kevin de Bruyne hefur skrifað undir samning við Manchester City, en þessi félagaskipti hafa legið í loftinu undanfarna daga. Þetta kemur fram á opinberri twitter síðu Manchester City.
Kevin de Bruyne gengur til liðs við Manchester City frá Wolfsburg, en kaupverðið er talið vera 50,8 milljónir punda sem gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Raheem Sterling var því aðeins í skamma stund efstur á þeim lista.
Kevin de Bruyne er fimmti leikmaðurinn sem aðallið Manchester City kaupir í sumar, en áður höfðu Raheem Sterling, Fabian Delph, Patrick Roberts og Nicolas Otamendi gengið til liðs við félagið.
Kevin de Bruyne var efstur á lista yfir flestar stoðsedningar í stærstu fimm deildum Evrópu á síðastliðnu tímabili með 20 stoðsendingar.