Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, lét fréttamann heyra það á fréttamannafundi eftir viðureign Chelsea og Manchester United í á Stamford Bridge í dag.
Þegar fréttamaðurinn spurði Van Gaal út í stöðu hans hjá félaginu og þær fréttir að José Mourinho væri hugsanlega á leið til félagsins í sumar brást Hollendingurinn illa við og sendi fréttamanninum tóninn eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.