Fjögur efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu mætast innbyrðis í 26. umferð deildarinnar sem verður um næstu helgi.
Stórleikir umferðarinnar fara báðir fram á sunnudaginn. Klukkan 12 tekur Arsenal, sem er í þriðja sæti, á móti toppliði Leicester og klukkan 16.15 eigast við Manchester City, sem er í fjórða sæti, og Tottenham sem er í öðru sætinu á Ethiad vellinum í Manchester.
Leicester er með 53 stig í efsta sæti, Tottenham er með 48 í öðru, Arsenal er í þriðja sætinu með 48 stig en lakara markahlutfall hefur en Tottenham og Manchester City er í fjórða sætinu með 47 stig.