Leikmenn Manchester City urðu fyrir óvenjulegri innrás á æfingu liðsins í morgun, en Twitter-síða félagsins birti myndir af æfingu í morgun.
Stór hópur dúfna gerði sig þá velkominn á æfingunni og var skarinn svo mikill að athygli vakti, eins og sjá má í færslunni hér að neðan.
Leikmenn City undirbúa sig nú fyrir viðureign við granna sína í Manchester United, en liðin mætast í sextán liða úrslitum í enska deildabikarnum á miðvikudagskvöld.
Pidge-invasion! 🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦🐦 #mcfc pic.twitter.com/KrzlXuqZci
— Manchester City (@ManCity) October 24, 2016