Það hefur sannarlega gengið vel hjá landsliðsfyrirliðanum Aroni Einar Gunnarssyni og félögum hans hjá Cardiff í ensku B-deildinni í knattspyrnu.
Raunar hefur ekkert lið innbyrt fleiri stig en Cardiff í deildinni á árinu, 21 talsins. Í þessum leikjum hefur Aron Einar verið í byrjunarliði í hvert einasta skipti. Það er tölfræðiveitan Opta Joe sem birtir þennan mola í dag.
Cardiff hefur 45 stig í 12. sæti og hefur hægt og rólega mjakað sér upp töfluna eftir erfiða byrjun. Cardiff leikur gegn Ragnari Sigurðssyni og félögum í Fulham á morgun.
21 - In 2017, no Championship side has won more points than Neil Warnock's Cardiff (21, level with Huddersfield). Renaissance. pic.twitter.com/9eWUOd7epx
— OptaJoe (@OptaJoe) February 24, 2017