Spænski miðjumaðurinn Santi Cazorla leikmaður Arsenal spilar ekki meira á þessu tímabili. Þetta staðfesti Arsene Wenger knattspyrnustjóri Lundúnaliðsins á vikulegum fundi með fréttamönnum í dag.
Cazorla hefur verið frá keppni vegna ökklameiðsla síðan í október. Vonir stóðu til að hann myndi snúa aftur inn á völlinn fljótlega a þessu ári en batinn hefur verið hægur hjá Spánverjanum og nú er orðið ljóst að hann hefur lokið keppni á þessu tímabili.