Fyrrverandi leikmaður Everton vonast til þess að Gylfi Þór Sigurðsson verði næsti leikmaðurinn sem Everton kynnir til leiks en liðið frá bítlaborginni hefur verið mjög öflugt á leikmannamarkaðnum í sumar.
Don Hutchinson, fyrrverandi leikmaður Everton, fagnar mjög framgangi félagsins á leikmannamarkaðnum í sumar í Twitter-færslu og vonast hann til þess að Gylfi Þór verði næsti leikmaðurinn sem félagið festir kaup á.
Átta leikmenn hafa bæst í leikmannahóp Everton á síðustu vikum og sá síðasti sem kynntur var til leiks var Wayne Rooney sem skrifaði undir samning við uppeldisfélag sitt í gær.
100million spent on a brill mix. Youth/experience What a window!!!!!!!💙Then hopefully Sigurdson 🤞🏼 https://t.co/YWf9djWU2E
— Don Hutchison (@donhutch4) July 10, 2017