Lærisveinar Pep Guardiola í Manchester City virðast óstöðvandi um þessar mundir en liðið vann þriðja stórsigurinn í ensku úrvalsdeildinni í röð í dag. Nú var það meinlaust lið Crystal Palace sem lá í valnum gegn þeim ljósbláu þar sem lokatölur urðu 5:0. Erkifjendur þeirra í Manchester United unnu einnig sigur, 1:0 á Southampton, sem var öllu meiri fyrirstaða en Crystal Palace var fyrir City, og er United-liðið með jafn mörg stig og grannar sínir en lakari markatölu.
Crystal Palace, sem er undir stjórn hins sjötuga Roy Hodgson hefur ekki enn skorað mark eftir sex leiki í deildinni og er án stiga á botninum með markatöluna 0:12. Það eina sem liðið er búið að gera á leiktíðinni er í raun að reka stjórann Frank de Boer úr starfi og ráða Hogdson.
Raheem Sterling skoraði tvívegis og þeir Leroy Sané , Sergio Aguero og Dabin Delph skoruðu allir eitt mark í öruggum sigri liðsins sem hefur unnið síðustu þrjá leik í deildinni samtals 16:0 og er liðið í toppsætinu með 16 stig eftir sex leiki og markatöluna 21:2. Liðið hvíldi að auki Gabriel Jesus, einn öflugasta sóknarmann deildarinnar, en náði samt sem áður að skora fimm mörk þriðja deildarleikinn í röð.
Manchester United vann nauman 1:0 sigur á Southampton á útivelli þar sem Romelu Lukaku skoraði sigurmarkið á 20. mínútu er hann fylgdi á eftir eigin skalla. United hefur 16 stig og markatöluna 17:2 og er því í 2. sæti á eftir City.
Alvaro Morata þakkaði stjóra sínum Antonio Conte fyrir hlý orð í sinn garð á blaðamannafundi í vikunni og skoraði þrennu fyrir Chelsea sem Stoke City örugglega á útivelli, 4:0. Pedro Rodriguez skoraði eitt mark fyrir Chelsea sem hefur 13 stig í 3. sæti. Stoke hefur 5 stig í 15. sæti.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton unnu afar sætan og langþráðan sigur á Bournemouth. Everton var 1:0 undir eftir 77. mínútna leik en tvær skiptingar Hollendingsins Ronald Koeman gerðu gæfumuninn. Baye Oumar Niasse kom inn sem varamaður fyrir Wayne Rooney á 55. mínútu og skoraði bæði mörkin. Tom Davies, annar varamaður, átti þátt í báðum mörkum. Fyrir leikinn hafði Everton ekki skorað í þremur deildarleikjum í röð.
Jóhann Berg Guðmundsson kom inná sem varamaður á 77. mínútu í markalausu jafntefli Burnley og Huddersfield. Þá vann Watford dramatískan sigur á Swansea í Wales, 2:1, þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma.