Brighton og Stoke skildu jöfn í lokaleik 12. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var nokkuð fjörugur þótt ekki tækist öðru liðinu að sigra.
Eric Maxim Choupo-Moting kom Stoke yfir á 28. mínútu en Pascal Gross jafnaði þremur mínútum fyrir hlé. Kurt Zouma kom Stoke aftur yfir á 45. mínútu og Stoke var því yfir að loknum fyrri hálfleik. Jose Izquierdo skoraði síðasta mark leiksins á 60. mínútu og jafnaði þá fyrir Brighton 2:2.
Brighton er áfram í efri hluta deildarinnar en liðið er í 9. sæti með 16 stig. Stoke er með 13 stig eins og Leicester, Bournemouth og Southampton.