Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, nálgast vafasamt met á sínum þjálfaraferli eftir að Arsenal gerði markalaust jafntefli við West Ham í gær.
Þetta var 62. markalausa jafnteflið hjá Wenger í ensku úrvalsdeildinni á ferlinum, en aðeins einn annar knattspyrnustjóri hefur afrekað það oftar.
Það er Harry Redknapp, sem hefur 64 sinnum gert markalaust jafntefli með lið sín í ensku úrvalsdeildinni.