Nú í hádeginu var dregið til 16 liða úrslitanna í Evrópudeildinni í knattspyrnu í höfuðstöðvum evrópska knattspyrnusambandsins í Nyon í Sviss.
Arsenal fékk erfiðan mótherja en Lundúnaliðið dróst á móti ítalska liðinu AC Milan. Sigurvegarinn í Evrópudeildinni tryggir sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð.
Drátturinn varð þessi:
Lazio - Dynamo Kiev
Leipzig - Zenit Pétursborg
Atlético Madrid - Lokomotiv Moskva
CSKA Moskva - Lyon
Marseille - Athletic Bilbao
Sporting Lissabon - Victoria Plzen
Dortmund - Salzburg
AC Milan - Arsenal
Fyrri leikirnir fara fram 8. mars og síðari leikirnir 15. mars.