Hinn 10 ára gamli Alex Nield er mikill stuðningsmaður Manchester United. Hann ferðast á alla leiki með pabba sínum og lætur sig ekki vanta á leiki með U18 ára liði félagsins.
Alex litli fæddist með heilalömun og getur hann ekki gengið. Hann á erfitt með hefðbundnar hreyfingar og að tjá sig. Það stoppar hann hins vegar ekki í því að vera harður stuðningsmaður félagsins og er hann orðinn vinsæll á meðal leikmanna þess.
Alex og pabbi hans ferðuðust m.a. til Spánar til að sjá leik Manchester United og Sevilla í Meistaradeild Evrópu fyrr á leiktíðinni. Eins og sjá má í myndbandinu fyrir neðan eru Juan Mata og Paul Pogba, leikmenn liðsins orðnir góðir vinir Alex.