Leicester að tryggja sér þjónustu Evans

Jonny Evans er að ganga til liðs við Leicester City …
Jonny Evans er að ganga til liðs við Leicester City fyrir 3,5 milljónir punda. AFP

Varnarmaðurinn Jonny Evans er við það að ganga til liðs við enska knattspyrnufélagið Leicester City en það er BBC sem greinir frá þessu. Evans hefur spilað með West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni, undanfarin þrjú ár.

Liðið féll niður í ensku B-deildina í vor og var talið næsta víst að Evans myndi yfirgefa félagið í sumar. Hann var sterklega orðaður við Tottenham í janúarglugganum síðasta en WBA vildi ekki selja hann á miðju tímabili.

Evans var fyrirliði WBA á síðasta tímabili en Leicester þarf að borga í kringum 3,5 milljónir punda fyrir miðvörðinn sem er þrítugur að aldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert