Manchester United vann sinn sjöunda sigur í röð í öllum keppnum er liðið vann Brighton á heimavelli, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Paul Pogba kom United yfir á 27. mínútu og Marcus Rashford bætti við marki á 42. mínútu er hann kláraði glæsilega eftir einleik.
Brighton gafst ekki upp og Pascal Gross minnkaði muninn á 72. mínútu. Brighton fékk færi til að jafna leikinn, en það tókst ekki og United fór upp fyrir Arsenal og upp í fimmta sæti deildarinnar.
United er nú aðeins þremur stigum á eftir Chelsea sem er í fjórða sæti, en Chelsea mætir Arsenal á eftir.
Man. Utd | 2:1 | Brighton | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Paul Pogba (Man. Utd) á skot framhjá Í fínni stöðu rétt utan teigs en Frakkinn setur boltann framhjá. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |