Argentínski sóknarmaðurinn Gonzalo Higuaín er kominn til liðs við Chelsea að láni frá ítalska meistaraliðinu Juventus og gildir samningurinn út leiktíðina.
Higuaín gekk frá samningi við Lundúnaliðið í kvöld eftir að hafa gengist undir læknisskoðun en hann hefur leikið sem lánsmaður með AC Milan á leiktíðinni.
Hann er 31 árs gamall og hefur leikið með Real Madrid, Juventus og Napoli, en hjá síðastnefnda liðinu spilaði hann einmitt undir stjórn Maurizio Sarri sem nú stýrir Chelsea. Hann á að baki 75 leiki með argentínska landsliðinu og hefur í þeim skorað 31 mark.