Coutinho vill fara frá Barcelona

Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Philippe Coutinho hefur tjáð forráðamönnum Barcelona að hann vilji yfirgefa herbúðir liðsins.

Spænska útvarpsstöðin Cadena SER greindi frá þessu í kvöld en ekki eru nema átjánir síðan Barcelona keypti Brasilíumanninn frá Liverpool og greiddi fyrir hann 145 milljónir punda sem jafngildir rúmlega 22 milljörðum króna.

Coutinho, sem er 26 ára gamall, hefur ekki náð á strik með Börsungum og hefur verð harðlega gagnrýndur af stuðningsmönnum félagsins. Hann hefur af og til verið orðaður við Manchester United en Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, vinnur hörðum höndum í að reyna styrkja lið sitt fyrir næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert