Bruce sterklega orðaður við Newcastle

Steve Bruce.
Steve Bruce. AFP

Steve Bruce er nú sterklega orðaður við knattspyrnustjórastöðuna hjá enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle.

Newcastle leitar eftirmanns Rafael Benítez sem er farinn til Kína. Newcastle-liðið heldur til Kína á laugardaginn þar sem það tekur þátt í Asíubikarnum og forráðamenn félagsins stefna á að vera búnir að ráða stjóra fyrir þann tíma.

Bruce hefur víða komið við á þjálfaraferli sínum. Hann tók við liði enska B-deildarliðsins Sheffield Wednesday í janúar en meðal þeirra liða sem hann hefur stýrt eru Aston Villa, Hull, Sunderland og Birmingham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert