Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka, gerði innslag fyrir þáttinn Völlurinn á Síminn sport. Þar fer hann yfir peningamál í ensku úrvalsdeildinni og kemur margt áhugavert fram.
„Meðallaunin eru 36 milljónir króna á mánuði,“ byrjaði Björn. „Miklu hærri laun en launahæsti maðurinn í íslensku kauphöllinni fær. Launin eru hæst í ensku úrvalsdeildinni og um þriðjungi hærri en á Spáni.“
Í innslaginu má sjá aukinn launakostnað Liverpool og Everton á síðustu þremur árum og að Alexis Sánchez og David De Gea séu á himinháum launum. Þá er launajöfnuðurinn mun meiri í ensku deildinni en öðrum stóru deildum í Evrópu.
Þetta áhugaverða innslag má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.