Everton og Tottenham skiptu með sér stigunum er þau mættust í furðulegum fótboltaleik á Goodison Park í Liverpool í lokaleik 11. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Lokatölur urðu 1:1.
Leikurinn sjálfur féll því miður í skuggann á afar ljótu fótbroti portúgalska miðjumannsins André Gomes skömmu fyrir leikslok, en hann verður væntanlega lengi frá eftir að Son Heung-min braut á honum og fékk rautt spjald fyrir vikið.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en hann var í beinni útsendingu á Símanum sport.