Leicester skaust aftur upp í annað sætið, upp fyrir Englandsmeistara Manchester City, með því að vinna dramatískan 2:1-sigur á Everton á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta dag. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton og með fyrirliðabandið og það voru gestirnir sem komust yfir á 23. mínútu með marki Richarlisons. Gylfi spilaði allan leikinn.
Jamie Vardy jafnaði metin eftir rúmlega klukkutíma leik er hann skoraði í sjötta leiknum í röð og seint í uppbótartímanum skoraði Kelechi Iheanacho dramatískt sigurmark. Aðstoðardómarinn taldi hann rangstæðan og veifaði flaggi sínu en eftir athugun í VAR var markið talið gott og gilt, við mikinn fögnuð heimamanna.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en hann var í beinni útsendingu á Símanum sport.