22 stiga forysta Liverpool - ótrúleg endurkoma Everton

Mohamed Salah fagnar fjórða marki Liverpool og sínu öðru marki.
Mohamed Salah fagnar fjórða marki Liverpool og sínu öðru marki. AFP

Liverpool vann Southampton á Anfield, 4:0, og er komið í 22 stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool-liðið heldur áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni en liðið er nú ósigrað í 42 leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og hefur að auki unnið 20 heimaleiki í röð. Með sigri á Tottenham á morgun getur Manchester City minnkað það forskot á ný í 19 stig þegar 25. umferðar hafa verið leiknar.

Alex Oxlade Chamberlain opnaði markareikning Liverpool í dag, Jordan Henderson skoraði eitt og lagði upp annað, Mohamed Salah skoraði tvö mörk og Roberto Firmino lagði upp þrjú mörk.

Southampton öflugt í fyrri hálfleik

Að vanda var Liverpool-liðið meira með boltann. Á 30. mínútu fékk Virgil Van Dijk fékk besta færi liðsins í fyrri hálfleik er hann reyndi hælspyrnu einn á móti markverði Southampton, Alex McCarthy, sem varði, og svo aftur. Southampton, sem hefur verið á góðri siglingu í deildinni að undanförnu, mætti hins vegar vel skipulagt til leiks og framherjar liðsins, Danny Ings og Shane Long, fengu raunar urmul hálffæra og betri færa til þess að koma Southampton yfir. Alisson í marki Liverpool var aftur á móti svo sannarlega betri en enginn á milli stanganna og þurfti þó sjaldan að hafa mjög mikið fyrir markvörslum sínum.

Roberto Firmino, Liverpool, í baráttu við leikmenn Southampton, Oriol Romeu, …
Roberto Firmino, Liverpool, í baráttu við leikmenn Southampton, Oriol Romeu, og James Ward-Prowse. AFP

Síðari hálfleikur fór fjörlega af stað. Alex Oxlade-Chamberlain kom Liverpool í 1:0 strax á 47. mínútu er hann fékk frítt skot fyrir utan teig, 1:0. Á 60. mínútu tvöfaldaði Jordan Henderson fyrirliði Liverpool forystu heimamanna eftir skyndisókn liðsins og stoðsendingu frá Roberto Firmino, 2:0. Mohamed Salah skoraði skoraði síðustu tvö mörk Liverpool í leiknum. Fyrst á 72. mínútu með laglegri afgreiðslu þar sem hann vippaði boltanum snyrtilega yfir McCarthy í markinu eftir undirbúning frá Henderson. Hann kætti svo stuðningsmenn Liverpool á Anfield enn frekar er hann renndi knettinum í netið af stuttu færi eftir sendingu frá Roberto Firmino sem lagði upp þrjú mörk í leiknum.

Southampton hefur 31 stig í 9. sæti.

Ótrúleg endurkoma Everton

Leikurinn fór hræðilega af stað hjá Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Everton sem mættu til Watford en gulklæddir heimamenn komust í 2:0 í fyrri hálfleik. Everton sneri þó taflinu sér í vil og vann 3:2 en Gylfi lagði upp annað mark liðsins.

Gylfi Þór Sigurðsson í baráttunni gegn Watford í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson í baráttunni gegn Watford í dag. AFP

Fyrst skoraði Adam Masina fyrir Watford á 10. mínútu og Roberto Pereyra tvöfaldaði forystu liðsins  á 42. mínútu.

Everton-menn gáfust aftur á móti ekki upp og jöfnuðu í fyrri hálfleik með tveimur mörkum Yerri Mina. Fyrra markið skoraði hann eftir hornspyrnu Everton þar sem hann þrumaði boltanum af línu í netið, 2:1. Í uppbótartíma jafnaði hann svo metin með skalla eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni sem kom inn í lið Everton á ný eftir meiðsli.

Leikurinn hélt þó áfram að vera nokkuð erfiður fyrir Everton sem missti Dabian Delph af velli með rautt spjald á 71. mínútu. Liðið spilaði þó ágætlega manni færri og náði að kreista fram sigurmarkið á 90. mínútu en þar var að verki Theo Walcott eftir stoðsendingu frá Ítalanum Moise Kean, 3:2. Gylfi fór af velli á 67. mínútu.

Everton hefur 30 stig í 12. sæti en Watford 23 stig í 19. sæti.

Fjör í Lundúnum

West Ham og Brighton skildu jöfn 3:3 í fjörugum leik þar sem hamrarnir komust tvívegis í tveggja marka forystu. Issa Diop og Robert Snodgrass komu liðinu í 2:0 í fyrri hálfleik og Snodgrass bætti svo þriðja markinu við á 57. mínútu í stöðunni 3:1 en áður hafði Angelo Ogbonna í liði West Ham gert sjálfsmark á 47. mínútu. Brighton-liðið neitaði þó að gefast upp og jafnaði með tveimnur mörkum á 75.  og 79. mínútu frá Pascal Gross og Glenn Murray.

Glenn Murray fagnar jöfnunarmarki Brighton.
Glenn Murray fagnar jöfnunarmarki Brighton. AFP

Mikilvægur sigur Bournemouth manni færri

Þá vann Bournemouth gríðarlega mikilvægan sigur á Aston Villa, 2:1, í botnbaráttunni og kom sér upp úr fallsæti. Daninn Philip Billing kom liðinu í 1:0 og varnarmaðurinn sterki Nathan Aké skoraði annað mark liðsins á 44. mínútu.  Liðið missti svo Jefferson Lerma af velli með rautt spjald á 51. mínútu. Villa-menn bitu frá sér og minnkuðu muninn í 2:1 á 70. mínútu með marki Mbwana Samatta en lengra komst liðið ekki. Bournemouth hefur 26 stig í 16. sæti. Villa er í 17. sæti með 25 stig, stigi fyrir ofan West Ham í fallsæti, 

Fyrir norðan skildu Newcastle og Norwich jöfn, 0:0. Newcastle er í 10. sæti með 31 stig en Norwich á botninum með 18 stig.

Að lokum vann Sheffield United 1:0 sigur á Crystal Palace í Lundúnum. Vicente Guaita var skráður fyrir markinu sem var því sjálfsmark. Sheffield hefur 36 stig í 5. sætinu en Palace 30 stig í 13. sæti.

Liverpool 4:0 Southampton opna loka
90. mín. Mohamed Salah (Liverpool) skorar MARK! 4:0! Mohamed Salah skorar sitt annað mark og enn og aftur er það Firmino sem á stoðsendinguna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert