Einn leikur var á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld. Grannarnir Wolves og Leicester áttust þá við á Molineux-vellinum í Wolverhampton og skildu jafnir, 0:0.
Wolves var töluvert nær því að vinna leikinn, því Willy Boly skoraði mark sem var dæmt af vegna afar naumrar rangstöðu og Raúl Jiménez fór illa með afar gott tækifæri.
Þá spilaði Leicester síðasta kortérið manni færri þar sem Hamza Choudhury fékk sitt annað gula spjald á 76. mínútu.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.