Tottenham vann dramatískan 3:2-sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Heung-min Son skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
Nýliðarnir komust yfir snemma leiks með sjálfsmarki Toby Alderweireld en Belginn bætti fyrir mistökin þegar hann sjálfur jafnaði metin 20 mínútum síðar. Heung-min Son kom svo Tottenham yfir skömmu fyrir hálfleik en heimamenn voru ekki að baki dottnir og jöfnuðu metin snemma í síðari hálfleik með marki frá Björn Engels.
Suður-Kóreumaðurinn í liði Tottenham átti þó eftir að eiga síðasta orðið. Svipmyndir úr leiknum má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.