Sheffield United og Brighton & Hove Albion skildu jöfn, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Enda Stevens kom Sheffield yfir á 26. mínútu en Neal Maupay jafnaði metin 4 mínútum síðar.
Með sigri hefði Sheffield-liðið farið upp í fimmta sæti og aðeins við tveimur stigum á eftir Chelsea.
Sheffield hefur 40 stig, jafn mörg og Tottenham, en með lakari markatölu og situr í 6. sæti. Brighton hefur 28 stig í 15. sæti.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við símann sport.