Che Adams reyndist hetja Southampton þegar liðið fékk Manchester City í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á St. Mary's-völlinn í Southampton í kvöld. Leiknum lauk með 1:0-sigri Southampton en Adams skoraði sigurmark leiksins á 16. mínútu.
Markið kom eftir vandræðagang í vörn City en Oleksandr Zinchenko tapaði þá boltanum á klaufalegum stað. Che Adams lét vaða á marki af fjörutíu metra færi og boltinn fór yfir Ederson í marki City og í netið.
Southampton fer með sigrinum upp í þrettánda sæti deildarinnar í 43 stig en City er áfram í öðru sæti deildarinnar með 66 stig, 8 stigum meira en Leicester sem er í þriðja sæti deildarinnar.
Southampton | 1:0 | Man. City | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. +5 mínútur í uppbótartíma. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |