Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, stýrði liðinu til sigurs í ensku úrvalsdeildinni á síðasta keppnistímabili en þetta var fyrsti Englandsmeistaratitill félagsins í þrjátíu ár.
Þá var félagið að vinna ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn en deildin var stofnuð árið 1992.
Klopp tók við stjórnartaumunum hjá Liverpool í október 2015 og hefur liðið orðið Evrópumeistari, heimsmeistari og nú síðast Englandsmeistari undir stjórn þýska stjórans.
„Árið 2020 er stærsta árið á okkar knattspyrnuferli,“ sagði Klopp.
„Strákarnir voru svo gott sem orðnir Englandsmeistarar í mars sem er ótrúlegt afrek þegar maður horfir og hugsar til baka.
Við verðum Evrópueistarar árið áður og svo Englandsmeistarar í ár og það er ekki eitthvað sem gerist á hverju ári.
Þess vegna þurfum við að staldra við, vera stoltir og njóta augnabliksins, því það er mikilvægast,“ sagði Klopp.
Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á morgun og mbl.is fjallar ítarlega um hana í samvinnu við Símann Sport.