Stuðningsmenn enska fótboltafélagsins Leeds United önduðu léttar þegar liðið tryggði sér í sumar sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 16 ára fjarveru. Eðlilega bíða þeir, eins og annað áhugafólk um enska fótboltann, spenntir eftir tímabilinu, en víst er að einhverjir þeirra eru ekki mjög bjartsýnir fyrir fyrsta leik, á móti Englandsmeisturum Liverpool á Anfield á morgun.
„Við vonum það besta en búumst ekki við miklu,“ segir Árni Þór Birgisson, formaður Leeds-klúbbsins á Íslandi. „Aðalatriðið er að sýna að „við“ eigum heima í þessari deild og allt umfram það er bónus.“
Árni Þór segir að undanfarin ár hafi oft verið erfið, þegar horft sé til gengis Leeds. „Mikið hefur gengið á undanfarin 15 ár og við höfum lært af reynslunni að ekkert er öruggt fyrr en síðasti leikur hefur verið flautaður af.“
Félagar í Leeds-klúbbnum fylgjast með leikjum sinna manna í Ölveri í Reykjavík. Árni Þór segir að allir leikir séu erfiðir og hann bendir réttilega á að Leeds þurfi að mæta öllum öðrum liðum í deildinni heima og að heiman. „Það er ágætt að byrja á mjög krefjandi verkefni eins og Englandsmeisturunum á þeirra heimavelli.“
Leeds var eitt af öflugustu liðum Englands á sjöunda og áttunda áratugnum. Árni Þór bendir á að þá hafi margir Íslendingar byrjað að halda með liðinu og sá stuðningur hafi almennt haldist síðan, þó ekki hafi alltaf farið mikið fyrir honum. „Ótrúlega margir Leedsarar eru úti um allt land,“ segir hann og bendir á að þeir séu á öllum aldri enda sé algengt að stuðningurinn berist frá kynslóð til kynslóðar. „Ég er til dæmis af annarri kynslóð Leedsara.“
Don Revie var stjóri Leeds á gullaldartíma félagsins 1961-1974. Þá stukku margir á vagninn, ekki síst Húsvíkingar, og hafa haldið tryggð við félagið síðan. Einn þeirra er Arnar Björnsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður. „Bræður mínir stríddu mér gjarnan á því að ég gat ekki sagt Manchester United, en ég gat sagt Leeds og hef haldið mig við það,“ segir hann um stuðninginn. Leggur áherslu á að engar tengingar hafi verið við félagið og hann hafi ekki átt keppnisbúninginn, hvað þá annað. „Það er af sem áður var því algengt er að börn séu nú gerð að stuðningsmönnum félaga nánast við fæðingu og það staðfest með treyju, buxum og sokkum, þau fái keppnisbúninginn eins og hann leggur sig.“
Arnar segir að Leeds hafi átt miklu fylgi að fagna á Húsavík á sjöunda áratugnum og hann og félagar hans hafi unnið ötullega að því að afla liðinu fylgismanna. „Um tíma held ég að ég hafi gert flesta ef ekki alla bekkjarfélaga mína að Leedsurum.“
Eftir að hafa tekið ástfóstri við Leeds segist Arnar hafa notað hvert tækifæri sem gafst til þess að fylgjast með árangri liðsins í breska útvarpinu, BBC World Service. „Við áttum gamalt, stórt útvarp og ég tengdi vír úr því upp í þakið til þess að ná útsendingunum,“ rifjar hann upp. „Ég átti það meira að segja til að hlaupa heim af góðum Völsungs-leik til þess að hlusta á BBC og heyra hvað væri að gerast hjá mínum mönnum. Þetta var mikið ævintýri, yndislegur og skemmtilegur tími, og frá því ég gat sagt Leeds hefur mér alltaf þótt vænt um liðið.“
L | U | J | T | Mörk | +/- | Stig | ||
1 | Liverpool | 29 | 21 | 7 | 1 | 69:27 | 42 | 70 |
2 | Arsenal | 29 | 16 | 10 | 3 | 53:24 | 29 | 58 |
3 | Nottingham F. | 29 | 16 | 6 | 7 | 49:35 | 14 | 54 |
4 | Chelsea | 29 | 14 | 7 | 8 | 53:37 | 16 | 49 |
5 | Manch. City | 29 | 14 | 6 | 9 | 55:40 | 15 | 48 |
6 | Newcastle | 28 | 14 | 5 | 9 | 47:38 | 9 | 47 |
7 | Brighton | 29 | 12 | 11 | 6 | 48:42 | 6 | 47 |
8 | Fulham | 29 | 12 | 9 | 8 | 43:38 | 5 | 45 |
9 | Aston Villa | 29 | 12 | 9 | 8 | 41:45 | -4 | 45 |
10 | Bournemouth | 29 | 12 | 8 | 9 | 48:36 | 12 | 44 |
11 | Brentford | 29 | 12 | 5 | 12 | 50:45 | 5 | 41 |
12 | Crystal Palace | 28 | 10 | 9 | 9 | 36:33 | 3 | 39 |
13 | Manch. Utd | 29 | 10 | 7 | 12 | 37:40 | -3 | 37 |
14 | Tottenham | 29 | 10 | 4 | 15 | 55:43 | 12 | 34 |
15 | Everton | 29 | 7 | 13 | 9 | 32:36 | -4 | 34 |
16 | West Ham | 29 | 9 | 7 | 13 | 33:49 | -16 | 34 |
17 | Wolves | 29 | 7 | 5 | 17 | 40:58 | -18 | 26 |
18 | Ipswich | 29 | 3 | 8 | 18 | 28:62 | -34 | 17 |
19 | Leicester | 29 | 4 | 5 | 20 | 25:65 | -40 | 17 |
20 | Southampton | 29 | 2 | 3 | 24 | 21:70 | -49 | 9 |