Sheffield United og Fulham fengu sín fyrstu stig í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðin mættust á Bramall Lane í Sheffield í dag. Urðu lokatölur 1:1 í dramatískum leik.
Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en Aleksander Mitrovic brenndi af vítaspyrnu fyrir Fulham á 57. mínútu.
Ademola Lookman kom Fulham yfir á 77. mínútu áður en Billy Sharp jafnaði metin fyrir Sheffield með marki úr vítaspyrnu á 85. mínútu.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.