Sead Kolasinac og Mohamed Elneny, leikmenn enska knattspyrnufélagsins Arsenal, hafa báðir greinst með kórónuveiruna en þeir eru í landsliðsverkefnum þessa helgina.
Bakvörðurinn Kolasinac reyndist jákvæður eftir skimun á landsliðshóp Bosníu og mun því missa af næstu leikjum eins og Elneny sem smitaðist í heimalandinu Egyptalandi, rétt eins og Mohamed Salah, leikmaður Liverpool.
Báðir eru farnir í einangrun og missa af leik Arsenal gegn Leeds í úrvalsdeildinni á sunnudag.